Fréttir allt

Opið fyrir umsóknir um orlofshús í sumar

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum í sumar. Um er að ræða tímabilið 30. maí til 29. ágúst og eru húsin leigð út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags. Umsóknarfrestur er til 15. mars og verða allar umsóknir teknar fyrir að þeim tíma loknum. Úthlutun verður tilkynnt eigi síðar en 10. apríl.

Góðgerðarkvöldverður Team Rynkeby

Góðgerðarkvöldverður Team Rynkeby til styrktar Umhyggju

Staða fatlaðra barna í fyrirhuguðu verkfalli Kennarasambands Íslands

Umhyggja ásamt Þroskahjálp, Einhverfusamtökunum, Sjónarhóli og ÖBÍ réttindasamtökum hafa sent frá sér ályktun um stöðu fatlaðra barna í fyrirhuguðu verkfalli Kennarasambandsins.

Systkinasmiðjur helgina 8. - 9. febrúar

Systkinasmiðjur verða haldnar í Reykjavík helgina 8. - 9. febrúar næstkomandi. Um er að ræða samstarf Systkinasmiðjunnar og Umhyggju og eru smiðjurnar ætlaðar systkinum langveikra barna. Smiðjurnar skiptast eftir aldri þannig að yngri hópur 8-11 ára (f. 2013-2016) hittist laugardag og sunnudag kl. 10-13 og eldri hópur 12-14 ára (f. 2010-2012) hittist laugardag og sunnudag kl.13.30-15.30.

Foreldra- og barnahópur Nýrnafélagsins gengur í Umhyggju

Nú hefur átjánda aðildarfélagið bæst í Umhyggju en um er að ræða Foreldra- og barnahóp Nýrnafélagsins. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í hópinn!

Opið fyrir orlofshúsaumsóknir um páska

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum Umhyggju um páskana 2025. Úthlutunin skiptist í tvö tímabil, annars vegar frá 11. - 16. apríl og hins vegar 16. - 21. apríl. Umsóknarfresturinn er til 15. janúar og verða allar umsóknir meðhöndlaðar eftir það. Úthlutun mun liggja fyrir í kringum 10. febrúar.

Gleðilega hátíð

Umhyggja - félag langveikra barna óskar ykkur gleðilegrar hátíðar með von um gott og gjöfult nýtt ár. Við þökkum ykkur öllum samfylgdina og stuðninginn á árinu sem er að líða. Skrifstofa félagsins verður lokuð frá hádegi 20. desember og opnar á ný fimmtudaginn 2. janúar.

Styrkur frá Oddfellowstúkunni nr.7 Þorkeli mána I.O.O.F.

Í dag, 19. desember, fengum við hjá Umhyggju góða gesti sem færðu okkur veglegan styrk frá stúkubræðrum í Oddfellowstúkunni nr.7, Þorkeli mána I.O.O.F.

Vel heppnaðar sýningar í Elliðarárdalnum

Ævintýri í jólaskógi með bættu aðgengi heppnaðist einstaklega vel.

Jólatónleikar til styrktar Umhyggju

Þann 5. desember næstkomandi kl.19:00 munu Kór Njarðvíkurkirkju og Vox Felix ásamt hljómsveit standa fyrir jólatónleikum til styrktar Umhyggju og Berginu Headspace. Allur aðgangseyrir rennur til málefnanna og er aðgangseyrir kr. 3000.